Sumardagurinn fyrsti var víst í gær, sól og blíða fylgdi honum
en núna er bara rigning og rok. Mættu vera fleiri dagar eins og í
gær,maður er kominn með hálfgert leið á þessu íslenska veðri.
Ég fór norður síðustu helgi og þá einmitt kynntist maður
íslenska veðrinu vel. Það var alltaf að breytast á leiðinni en við
enduðum í sól og blíðu bæði í skagafirði og svo á akureyri. Ferðin
gekk bara ágætlega fyrir sig fyrir utan að við þurftum að byrja á
því að stoppa í næstum einn og hálfan tíma á Borganesi! Bíllinn,
Poloinn sem ég er á, byrjaði allt í einu að pípa á fullu og sagði
að handbremsan væri á, en svo var ekki. Við tjekkuðum þá á
bremsuvökvanum en alltí lagi með hann. Næsta skref var þá bara að
fara með hann á verkstæði. Við vorum ekki alveg að treysta að
leggja aftur á stað ef að bremsurnar væru að fara eða eitthvað
álíka. En þá kom í ljós að það var einhver nemi bilaður þannig
greyið bíllinn hélt bara að handbremsan væri á. Þannig við héldum
bara áfram ferðinni með bíbið, sem btw. pípti í 5 mín í hvert
skipti sem maður lagði af stað. Getið ímyndað ykkur hversu gaman
það var!
Ég keyrði víst aðeins yfir löglegan hraða og löggan stoppaði
mig, 30 þús kall í sekt takk fyrir! Svolítið búið að hækka...ég var
tekin fyrir 2 árum á sama hraða og þá var það 10þús kall í sekt. En
maður verður bara að sætta sig við þetta og keyra löglega. Fæ þá
bara minni pening til að eyða úti...
Ég er einmitt búin að vera
að svo dugleg að spara pening til að taka með mér út til Spánar,
vil ekki verða peningalaus þarna úti.
Svo er núna bara 6 dagar eftir af skólanum og svo koma bara
prófin...get ekki sagt að ég hlakki til þeirra en ég hlakka til
þegar þau eru búin! Ég fer reyndar bara í 2 próf í FS og svo
fjarnámið, hef aldrei farið í jafn fá próf á ævinni! Yfirleitt hef
ég verið að fara í 6-7 próf á hverri önn! Smá lúxus núna...
Var bara að koma úr baði og fer að fara að vinna svo á eftir,
svo er ball í festi á morgun og auðvitað mætir maður þangað. Páll
Óskar og milljónamæringarnir eru að spila þannig þetta verður
pottþétt stuð, Palli klikkar aldrei
Jæja, held ég sé búin að babla nóg...fyrir utan að ég gerði
svolítið í gær sem var orðið tímabært en ætla ekki að segja frá því
strax. Þið sem umgangist mig vitið alveg hvað það var...svolítið
erfitt að komast yfir þetta en ég vona að mér líði betur þegar ég
næ að komast yfir þetta.
heyri í ykkur fólk,
kata